Staðfest skrá yfir íslensk fyrirtæki

Þegar fólk spyr gervigreind um þína þjónustu á fyrirtækið þitt að koma rétt fram.

Gagnaleit sannreynir upplýsingar um íslensk fyrirtæki, dagsetur þær og birtir á því formi sem ChatGPT, Gemini og Claude sækja og vitna í. Grunnskráning er ókeypis.

Engin breyting á vefnum þínum

Vertu sýnilegri í svörum gervigreindar

ChatGPT vitnaði í gagnaleit.is í 924 af 1.595 svörum um fyrirtæki eftir að færsla þeirra fór í loftið.

Réttum svörum ChatGPT við spurningum um staðreyndir fyrirtækjanna fjölgaði úr 215 í 324 af 406.

43 fyrirtæki, mælt í október og nóvember 2026. Sömu staðreyndaspurningar voru lagðar fyrir ChatGPT áður en færslan birtist og aftur eftir birtingu.

69 fyrirtæki með færslu í loftinu

Ferðamenn og viðskiptavinir leita ekki lengur á Google.

Svörin eru oft röng

Gervigreind sækir í vef þar sem verð eru úrelt, opnunartímar rangir og heilu fyrirtækin vantar. Hún nefnir þá sem birta skýrast, ekki þá sem eru bestir.

Skráningarsíður ná ekki utan um þetta

Nafn, símanúmer og opnunartími eru alls staðar til. Verð með því sem innifalið er, skilyrði og hverjum þjónustan hentar — það er hvergi skráð.

Við sjáum um tæknilegu hliðina

Ekkert breytist á vefnum þínum og við biðjum ekki um aðgang að honum. Þú fyllir út form, við sannreynum og birtum.

Hver staðreynd er dagsett

Á hverri færslu stendur hvenær hún var staðfest og hvaðan upplýsingarnar koma. Það er forsenda þess að nokkur — maður eða vél — treysti henni.

Svona virkar það

01

Þú skráir vefslóðina

Ókeypis, tekur um mínútu: vefslóðin, kennitala fyrirtækisins og hvernig má ná í þig. Við lesum það sem stendur á vefnum þínum og semjum drög að færslu.

02

Við sannreynum, þú staðfestir

Við berum heiti og kennitölu saman við fyrirtækjaskrá og annað saman við vefinn þinn, og sendum þér drögin til staðfestingar.

03

Færslan birtist dagsett

Ein síða á fyrirtæki, skrifuð fyrir það hvernig leitarvélar gervigreindar lesa: skýrt svar, tölur, heimild og staðfestingardagur. Slóðin vísar á þinn eigin vef.

04

Þú sérð hvað gervigreindin segir

Við leggjum fastan spurningalista fyrir helstu mállíkön með reglubundnu úrtaki og skráum hvort vitnað er í þig, í hvaða samhengi og hvort svarið er rétt.

Engin breyting fyrir þig

Við snertum ekki vefinn þinn

Engin aðgangsorð, engin viðbót, engin uppsetning. Skráningin er sjálfstæð síða hjá okkur sem vísar á þig.

Réttar upplýsingar

Við birtum aðeins það sem þú skráir sjálfur og það sem stendur á vefsíðunni þinni. Aðrar heimildir, svo sem fyrirtækjaskrá, notum við aðeins til samanburðar.

Oftar í leitarniðurstöðum

Fyrirtækið þitt kemur oftar upp þegar fólk spyr gervigreind um þína þjónustu eða um fyrirtækið sjálft.

Spurningar

Algengar spurningar

Hvað er Gagnaleit?
Staðfest skrá yfir íslensk fyrirtæki, skrifuð svo ChatGPT, Gemini og Claude geti nefnt fyrirtækið ykkar og vísað á eigin vef. Bókanir eru áfram hjá ykkur.
Þurfið þið aðgang að vefnum okkar?
Nei. Þú gefur okkur vefslóðina. Við lesum það sem stendur á vefnum, berum heiti og kennitölu saman við fyrirtækjaskrá og birtum dagsetta færslu sem vísar á þig. Engin aðgangsorð, engin viðbót, engar breytingar á vefkerfinu.
Hvað kostar grunnskráning?
Hún er ókeypis. Við semjum drög að færslunni af vefnum þínum, þú staðfestir þau, og við sannreynum hverja staðreynd áður en hún er merkt staðfest.
Hvað gerist eftir að ég sendi skráninguna?
Færslan er óbirt uns við höfum borið heiti og kennitölu saman við fyrirtækjaskrá, annað saman við vefinn þinn, og sent þér drögin. Hver birt staðreynd ber dagsetningu og heimild.

Ókeypis grunnskráning

Skráðu fyrirtækið þitt

Skráðu vefslóðina. Við lesum vefinn, semjum drög að færslunni og sendum þér þau til staðfestingar.

Við lesum það sem stendur á vefnum þínum og sendum þér drög til staðfestingar.

Gagnaleit er staðfest skrá yfir íslensk fyrirtæki. Staðreyndir eru dagsettar og með heimild svo ChatGPT, Gemini og Claude geti nefnt ykkur og vísað á eigin vef. Ókeypis grunnskráning á https://gagnaleit.is/is.