Persónuvernd

Fyrir aðgang, leiðréttingu, eyðingu eða afturköllun samþykkis, sendið póst á hallo@gagnaleit.is.

Ábyrgðaraðili

Gagnaleit ehf. er ábyrgðaraðili vinnslu á gagnaleit.is.

Skráning á forsíðunni

Þegar fyrirtæki skráir sig sendir það nafn, kennitölu, vefslóð, netfang og síma, og þær staðreyndir sem það velur að skrá. Með fylgir nafn, hlutverk, sími og netfang þess sem skráir.

Kennitalan forfyllir nafn og heimilisfang úr fyrirtækjaskrá og er aldrei birt. Netfang er ekki birt nema hakað sé við það.

Við notum skráninguna til að staðfesta upplýsingarnar og birta færslu sem fyrirtækið hefur heimilað.

Vefkökur

Síðurnar virka án valfrjálsra vefkakna. Valið er geymt í vafranum á þessu tæki og er ekki sent til okkar.

Greining er Google Analytics 4 hjá Google Ireland Limited. Hún mælir hvaða síður eru lesnar: slóð síðunnar, hvaðan komið var, handahófskennt auðkenni, vafri og tæki, og gróf staðsetning. Google geymir ekki IP-töluna. Auglýsingaeiginleikar eru óvirkir. Google getur unnið úr gögnunum utan EES samkvæmt eigin skilmálum um gagnaflutning.

Markaðssetning er Meta-pixill hjá Meta Platforms Ireland Limited. Hann skráir að síða hafi verið skoðuð, svo hægt sé að mæla árangur auglýsinga. Með fylgir handahófskennt auðkenni og gróf staðsetning. Það sem er skrifað í eyðublöð er ekki sent. Meta getur unnið úr gögnunum utan EES samkvæmt eigin skilmálum um gagnaflutning.

Ekkert er sent til Google eða Meta fyrr en þú samþykkir. Þú dregur samþykkið til baka með hnappnum Vafrakökur. Þá stöðvast þessar vefkökur og þeim sem vafrinn sér er eytt.

Hver fær gögnin

Skráningin er hjá okkur. Google Ireland Limited og Meta Platforms Ireland Limited fá gögn aðeins eftir samþykki.

Persónuverndarstefna GooglePersónuverndarstefna MetaPersónuvernd

Forsíða