Skilmálar

Síðast uppfært 18. nóvember 2026.

Spurningar um skilmálana má senda á gagnaleit@gagnaleit.is.

Hver veitir þjónustuna

Gagnaleit er þjónusta sem Hera software ehf. rekur, kt. 700401-3590, Álfholti 24, 220 Hafnarfjörður. VSK-númer 72262. Félagið er skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins.

Þjónustan

Gagnaleit er gervigreindarbestun fyrir fyrirtæki: þjónusta sem hjálpar fyrirtækjum að verða sýnilegri í svörum gervigreindar á borð við ChatGPT, Gemini og Claude.

Skráning og samþykki

Með skráningu staðfestir þú að þú megir koma fram fyrir hönd fyrirtækisins.

Við semjum drög að færslunni og sendum þau fyrirtækinu til staðfestingar. Færslan birtist ekki nema fyrirtækið samþykki það.

Fyrirtækið getur dregið samþykkið til baka hvenær sem er með tölvupósti á gagnaleit@gagnaleit.is. Þá tökum við færsluna úr birtingu.

Upplýsingarnar

Fyrirtækið ber ábyrgð á að það sem það sendir okkur sé rétt og lætur okkur vita þegar eitthvað breytist.

Við birtum aðeins staðreyndir sem hafa verið yfirfarnar. Hver sem er getur tilkynnt villu. Staðreynd sem reynist röng fer af síðunni þar til hún hefur verið leiðrétt og yfirfarin að nýju.

Verð

Grunnskráning er ókeypis. Þjónusta gegn gjaldi er aðeins veitt samkvæmt samkomulagi sem er gert fyrir fram.

Persónuvernd

Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndaryfirlýsing Gagnaleitar.

Breytingar

Við getum breytt skilmálunum. Dagsetning síðustu breytingar stendur efst á síðunni.

Ef reksturinn færist til annars félags tekur það við þjónustunni, skráningunum og þessum skilmálum. Við látum skráð fyrirtæki vita með tölvupósti áður en það gerist.

Lög

Um skilmálana gilda íslensk lög.

PersónuverndTilkynna villuHera software ehf. í fyrirtækjaskrá

Forsíða